Verslun Launafls

Þjónusta, þekking og lausnir

Launafl starfrækir öfluga verslun og lager sem þjónustar bæði einstaklinga og fyrirtæki. Starfsfólk verslunar Launafls er að jafnaði 5 hverju sinni með víðtæka þekkingu á m.a. vörum tengdum iðnaði, málingavörum og verkfærum.

Í verslun launafls finnur þú mikið úrval af vörum fyrir flest verk tengt iðnaði eins og bolta, rær, skífur, rafsuðuvörur, suðufittings, pakkningaefni o.fl. Einnig má þar finna úrval af öryggisvörum og persónubundnum öryggisfatnaði.

AGA gas fyrir grillið fæst í versluninni. Við erum með flest allar stærðir og tegundir af gasi og gasbúnaði. Einnig fæst þar kolsýruhylki fyrir SodaStream.

Launafl hefur bæði fært starfsfólk og mikið úrval af vörum fyrir Slöngusmíði. Verslunin hefur ávallt mikið af fittings og slöngum á lager og getur þrykkt slöngur af flest öllum stærðum hverju sinni.

Hjá launafli finnur þú flest allt fyrir pallasmíðina fyrir utan timbur, ásamt vörum til viðhalds á þeim.

Þrifa og rekstrarvörur fyrir ferðavagna og heitapotta færðu hjá launafli, ásamt bílaþrifvörum og olíu.

Úrval rafmagnsverkfæra frá Þór hf. færðu einnig hjá okkur.

Ýmsar aðrar vörur má einnig finna í versluninni, svo endilega kíktu við og skoðaðu úrvalið.

Launafl er umboðsaðili fyrir:

  • Linde Gas
  • Smith og Norland, þar sem ýmis heimilistæki og aðrar vörur eru fáanlegar.
  • Málning hf, þar sem þú finnur málningu, pallaolíu og allan þann búnað og vörur fyrir málningarvinnuna.
  • Josera, þar sem mikið úrval er af bæði hunda- og kattarfóðri.

Starfsfólk verslunarinnar er ávallt reiðubúið til þess að aðstoða og veita ráðgjöf


Verslun
Austurvegi 20a
730 Reyðarfjörður
Sími 414 9460
Neyðarsími slöngur 852 4840
 

mán.-fim. 8:00-17:00
fös. 8:00-16:00

Verslunarstjóri
Rúnar Bernburg
s. 861-2331
runar@launafl.is