Þann 1. maí síðastliðin var hið árlega Launaflshlaup í samvinnu við Krabbameinsfélag Austfjarða. Að þessu sinni tóku 32 hlauparar þátt og stóðu sig öll frábærlega!
Í karlaflokki kom Gunnar Lárus Karlsson fyrstur í mark á 00:54:07, Sigurður Helgi Magnússon var annar á tímanum 00:56:51 og þriðji var Sigurjón Rúnarsson á tímanum 00:57:01. Í kvennaflokki kom Jóhanna Pálsdóttir fyrst í mark á tímanum 00:59:15, önnur var Ingibjörg Ásta Ingvarsdóttir á 01:15:10 og augnabliki eftir henni kom Jóhanna Björk Magnúsdóttir á tímanum 01:15:17. Launafl óskar öllum hlaupurum og skokkurum til hamingju með frábæran árangur og þakkar öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd hlaupsins.