Fyrsta skóflustungan að endurbættu Stríðsárasafni

Frá vinstri: Magnús Helgason framkvæmdastjóri Launafls og bæjarfulltrúarnir Hjördís Helga Seljan, Ra…
Frá vinstri: Magnús Helgason framkvæmdastjóri Launafls og bæjarfulltrúarnir Hjördís Helga Seljan, Ragnar Sigurðsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Mynd: Austurfrétt/Gunnar

Fyrsta skóflustungan í endurbótum á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði var tekin á fimmtudaginn. Fyrsti áfangi felur í sér uppbyggingu nýs bragga sem verður nýttur sem sýningarhúsnæði við hlið núverandi byggingu safnsins. Við hjá Launafli erum spennt að fá að taka þátt í þessu metnaðarfulla verkefni sem hefur bæði menningarlegt og sögulegt gildi fyrir svæðið.