Launafl kaupir HD á Eskifirði

Launafl hefur undirritað samning um kaup á öllum eignum og tækjum HD á Eskifirði. Kaupin marka tímamót í sögu Launafls og skapa sterkan grunn fyrir áframhaldandi þróun og eflingu á þjónustu félagsins.

Dagleg starfsemi verður óbreytt og munu þjónusta og samskipti við viðskiptavini fara fram undir merkjum Launafls frá og með mánudeginum 2. mars 2026. Markmið kaupanna er að efla þá þjónustu sem Launafl býður upp á enn frekar og skapa ný tækifæri til þróunar og samstarfs.