Launafl Mannauðshugsandi fyrirtæki 2026

HR Monitor setur ströng skilyrði á fyrirtæki sem fá útnefningu á mannauðshugsandi fyrirtæki sem eru meðal annars reglulegar mannauðsmælingar meðal alls starfsfólks sem við upplýsum svo um niðurstöður og árangur. Stjórnendur fá yfirsýn yfir árangur sinna deilda. Svona sýnum við í verki að mannauðurinn skiptir okkur miklu máli enda er fyrirtækið aðeins jafn sterkt og mannauðurinn sem þar starfar. Þessi viðurkenning er okkur kær.

Í HR Monitor er spurt útí ánægju á vinnustað, stjórnarháttum, starfsanda, tækifæri í starfi og margt fleira sem viðkemur mannauðsmálum. Allt starfsfólk fær tækifæri til að gefa yfirmanni endurgjöf reglulega bæði á frammistöðu sem stjórnanda sem og á sínu starfsumhverfi. Stjórnendur fá þannig dýrmæta endurgjöf á störf sín sem þeir geta nýtt til að efla sjálfsþekkingu sína og gera enn betur í starfi sem leiðtogar.

Á bakvið Launafl er öflugur og samheldin hópur starfsfólks sem við erum afar stollt af.