Launafl sér um endurbætur á Fjarðabyggðarhöllinni

Launafl og Fjarðabyggð hafa undirritað samning um uppsetningu á nýju loftræsti- og hitakerfi í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.

Verkefnið felur í sér uppsetningu kerfis sem mun bæta bæði loftskipti og upphitun og þannig skapa betri aðstæður fyrir öll sem hana nota. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í ársbyrjun 2027.

Við hjá Launafli hlökkum til að takast á við verkefnið og leggja okkar af mörkum til að bæta aðstöðuna í Fjarðabyggðarhöllinni til framtíðar.