Þann 1. maí síðastliðinn var hið árlega Launaflshlaup haldið í samvinnu við Krabbameinsfélag Austfjarða. Að þessu sinni tók 31 hlaupari þátt og stóðu þau sig öll frábærlega.
Í karlaflokki kom Gunnar Lárus Karlsson fyrstur í mark á tímanum 00:51:15. Annar varð Jón Vigfússon á tímanum 00:54:27 og þriðji var Sigurður Helgi Magnússon á tímanum 00:58:41.
Í kvennaflokki kom Þórey Hákonardóttir fyrst í mark á tímanum 01:06:03. Önnur varð Bergrós Birna Sigurgeirsdóttir á tímanum 01:13:07 og þriðja var Monika Björk Aradóttir á tímanum 01:20:43.
Launafl óskar öllum hlaupurum til hamingju með frábæran árangur og þakkar öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd hlaupsins.